19 mar. 2012ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar. Þingið fer fram á miðvikudaginn kemur 21. mars og hefst kl. 17.00. Áætluð dagskrálok eru um kl. 20.00. Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur. Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir. Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið. ·Hvernig geta íþróttagreinar unnið betur saman í dómaramálum? ·Hver er áhrifamáttur og ábyrgð þjálfara og fjölmiðla? ·Hvernig fjölgum við dómurum og höldum þeim í starfi? ·Yfir hvaða eiginleikum þarf íþróttadómari að búa yfir? ·Hvernig fjölgum við konum í dómarastétt? Þessum spurningum verður reynt að svara á málþinginu, m.a. í vinnuhópum þar sem allir hafa möguleika á þátttöku. Niðurstöður hópavinnunnar verða birtar eftir að hópavinnu lýkur. Forystumenn þessa málaflokks hjá ofangreindum sérsamböndum verða í panel í lok málþingsins. Skráning er í síma 514-4000 eða á [p+]linda@isi.is[p-] linda@isi.is[slod-]. Í boði verður kaffi og léttar veitingar. Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is Dagskrá málþingsins: 17.00 Ávarp/setning 17.05 Sameiginlegir þættir 17.15 Fulltrúar íþróttagreinanna – kynning 17.40 Skilgreining hópavinnu 17.45 Hópavinna A) Hvernig geta íþróttagreinar unnið betur saman í dómaramálum? B) Hver er áhrifamáttur og ábyrgð a) Þjálfara? b) Fjölmiðla? C) Hvernig fjölgum við dómurum og höldum þeim í starfi (hindrum brottfall)? D) Yfir hvaða eiginleikum þarf íþróttadómari að búa yfir? E) Hvernig fjölgum við konum í dómarastétt? 18.45 Kaffihlé 18.55 Niðurstöður hópavinnu 19.25 Fyrirspurnir og umræður – (Panell) 19.50 Samantekt 20.00 Málþingslok