13 mar. 2012Komnir eru inn leikdagar fyrir úrslitakeppni 1. deildar karla sem hefst á föstudaginn kemur, en þá hefjast undanúrslitin með tveim leikjum. Leikið verður föstudag, sunnudag og svo á þriðjudegi sé þess þörf. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram í úrslitarimmuna um sæti í efstu deild að ári. Föstudagur 16. mars: Hamar - ÍA í Hveragerði kl. 19.15 Skallagrímur - Höttur í Borgarnesi kl. 19.15 Sunnudagur 18. mars: ÍA - Hamar á Akranesi, Jaðarsbökkum kl. 19.15 Höttur - Skallagrímur á Egilsstöðum kl. 18.00 Þriðjudagur 20. mars: (oddaleikir ef þess þarf) Hamar - ÍA í Hveragerði kl. 19.15 Skallagrímur - Höttur í Borgarnesi kl. 19.15