7 mar. 2012Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ tók fyrir tvö mál í vikunni. Darco Milosevic, leikmaður Þórs Ak., var vísað úr húsi í leik Þórs og Skallagríms í 1. deild karla en hann fékk tvær tæknivillur í leiknum. Fær hann einn leik í bann. Helgi D. Ingason fékk brottrekstrarvillu að loknum leik Leiknis og Mostra í 2. deild karla. fær hann einn leik í bann. Bönnin taka gildi á hádegi á morgun fimmtudag.