5 mar. 2012Ákveðið hefur verið að halda hið árlega Molduxamót fyrir karla 40 ára og eldri og konur á besta aldri. Mótið fer fram laugardaginn 5 maí. í íþróttahúsinu á Sauðárkróki (Síkinu)g og nú í fyrsta sinn á splunkunýju parketi. Keppt verður bæði í karla- og kvennaflokkum og einnig gefst einstaklingum kostur á að skrá sig og verða sett saman lið fyrir þá sem skrá sig þannig. Þáttökugjald er kr. 2500 kr. á hvern þáttakanda. Kvöldvaka og ball verður eftir mótið samkvæmt venju. Að auki verður mikið um að vera í Skagafirðinum þessa helgi þar sem „Sæluvika Skagfirðinga“ fer fram þessa vikuna og verður ýmislegt í boði þar við allra hæfi. Allar upplýsingar og skráningar eru hjá Alla Munda í síma 453 6687 / 865 0819 og á netfanginu [p+]allimunda@internet.is[p-]allimunda@internet.is[slod-] Nánari upplýsingar verða svo settar á heimasíðu félagsins [v+]http://www.molduxar.is [v-]www.molduxar.is[slod-] þegar nær dregur.