28 feb. 2012Sigmundur Már Herbertsson dæmir í dag, þriðjudaginn 28. febrúar, leik í EuroCup karla. Leikurinn fer fram í Ungverjalandi og verður væntanlega hörkuviðureign heimamanna í Szolnoki Olaj gegn Telekom Basket frá Þýskalandi. Um er að ræða lokaumferðina í riðlinum og staðan er hnífjöfn. Það lið sem vinnur þennan leik í kvöld kemst áfram í keppninni. Meðdómarar Sigmundar koma frá Grikklandi og Króatíu og eftirlitsmaðurinn er frá Tyrklandi. Staðan í riðlinum: 1. ELAN CHALON 3/2 · 8 stig 2. TELEKOM BASKETS BONN 3/2 · 8 stig 3. SZOLNOKI OLAJ KK 2/3 · 7 stig 4. GENERALI OKAPI AALSTAR 2/3 stig · 7 stig Í beinni á netinu [v+]http://www.fibatv.com/europe/live [v-]FIBATV[slod-] sýnir beint í opinni dagskrá leik úr K-riðli milli Besiktas frá Tyrklandi (4-1) og Fuenlabrada frá Spáni (5-0) í baráttunni um fyrsta sæti riðilsins. Leikurinn hefst kl. 18.00 að íslenskum tíma.