23 feb. 2012Á morgun kl. 17.00 að íslenskum tíma leikur Helena Sverrisdóttir og liðsfélagar í Good Angel Kosice gegn hinu rússneska ofurliði UMMC Ekaterinburg í Euroleague í Slóvakíu. Liðin mættust fyrir skömmu í rússlandi þar sem heimastúlkur sigruðu 61-55. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram í keppninni og því ljóst að Helena og félagar þurfa að sigra í dag til að tryggja sér aukaleik. [v+]http://www.fibaeurope.com/coid_GXSGdzgbHvgLdpTZDqrd51.articleMode_on.html [v-]Leikurinn verður í beinni útsendingu á vef FIBATV[slod-] Á vef [v+]http://www.fibaeurope.com/euroleaguewomen/coid_GXSGdzgbHvgLdpTZDqrd51.articleMode_on.html [v-]fibaeurope.com[slod-] er viðtal við Helenu fyrir leikinn í dag. Meðal leikmanna mótherja Helenu eru Sandrina Gruda og Maria Stepanova, sem báðar hafa verið valdar „Bestu leikmenn Evrópu“ af FIBA Europe.