16 feb. 2012
Úrslitaleikir í Poweradebikar karla og kvenna fara fram nk. laugardag í Laugardalshöll. Í dag hittast þjálfarar, fyrirliðar og forráðamenn liðanna á blaðamannafundi fyrir átökin framundan en hann fer fram á Hilton Nordica klukkan 14:00. Hvorugt kvennaliðanna hefur unnið þennan bikar áður og verður því nýtt nafn skráð á bikarinn 2012. Kvennleikur hefst klukkan 13:30 Hjá körlum er Keflavík að fara í sinn 10. úrslitaleik en liðið lék síðast til úrslita árið 2006. Tindastóll er að skrifa nýjan kafla í sína sögu en liðið er á leið í sinn fyrsta úrslitaleik. Karlaleikur hefst klukkan 16:00