14 feb. 2012Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ sem ætla að mæta í Laugardalshöllina á bikarúrslitin í Poweradebikarnum eru minntir á að nálgast þarf miða á skrifstofu KKÍ á morgun miðvikudag eða á fimmtudaginn milli klukkan 13.00-15.00. Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis: Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta hringt á skrifstofu KKÍ á sama tíma til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að sækja í Laugardalshöllina á leikdag í afgreiðslu miða í anddyri. Handhafi kortsins þarf að mæta í eigin persónu til þess að sækja miða gegn framvísun kortsins og persónuskilríkja. Undanfarin ár hafa handhafar aðgönguskírteina/boðskorta getað fengið miða afhenda á leikstað við komuna á úrslitaleikina í Laugardalsöllinni. Í ár hefur verið ákveðið að allir þeir sem ætla sér að nýta sín aðgönguskírteini/boðskort verði að nálgast miða fyrirfram á skrifstofu KKÍ eins og segir til um í reglugerð um aðgönguskírteini. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn. Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“ Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni [v+]http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=23 [v-]hérna[slod-].