14 feb. 2012FIBA Europe hefur tilkynnt að Jonas Valanciunas frá Litháen er „Besti ungi leikmaðurinn“ árið 2011. Jonas var valinn bestur af dómnefnd og var valinn í öðru sæti í netkosningu almennings. Nikola Mirotic frá Spáni varð annar í kjörinu og Enes Kanter frá Tyrklandi þriðji. Jonas leiddi U19 ára lið Litháens til heimsmeistaratitils síðastliðið sumar og leiddi mótið í stigum og fráköstum, var með 23 stig og 13.9 fráköst að meðaltali í leik. Í úrslitaleiknum gegn Serbíu skoraði hann 36 stig, tók 8 fráköst ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar og verja þrjú skot og var valinn Besti leikmaður mótsins að því loknu. Í ágúst lék hann svo á heimavelli í Litháen í Evrópukeppninni með A-landsliðinu og stóð sig vel. Jonas, sem er 2.10 cm hár miðherji, var svo valin númer fimm í nýliðavali NBA af Toronto Raptors í haust, en hann hefur leikið með Lietuvos Rytas undanfarið sem meðal annars lék í Euroleague síðastliðið ár.