10 feb. 2012Mótanefnd KKÍ hefur sett undanúrslitaleiki Powerade-bikars kvenna á næstkomandi mánudag kl. 19.15. Ekki var hægt að setja á undanúrslitaleikina á sínum tíma þar sem að kæra barst frá kkd. Keflavíkur vegna framkvæmdar leiks Njarðvíkur og Keflavíkur í 8-liða úrslitum Powerade-bikars kvenna. Nú er komin úrskurður úr þeirri kæru og standa úrslit leiksins þar sem Njarðvík fór með sigur af hólmi. KKÍ barst tilkynning frá kkd. Keflavíkur þess efnis að félagið ætli ekki að áfrýja niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar og því ákvað mótanefnd að setja leikina á. Undanúrslit 13. febrúar kl. 19.15: Njarðvík - Njarðvík-Haukar Stykkishólmur - Snæfell-Stjarnan