10 feb. 2012Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa í ár að nálgast miða sína fyrirfram ólíkt því sem áður hefur verið.   Undanfarin ár hafa handhafar aðgönguskírteina/boðskorta getað fengið miða afhenda á leikstað við komuna á úrslitaleikina í Laugardalsöllinni. Í ár hefur verið ákveðið að allir þeir sem ætla sér að nýta sín aðgönguskírteini/boðskort verði að nálgast miða fyrirfram á skrifstofu KKÍ eins og segir til um í reglugerð um aðgönguskírteini. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn.   Handhafar aðgönguskírteina/boðskora geta sótt miðana á bikarúrslit karla og kvenna í Poweradebikarnum í eigin persónu á miðvikudag 15. febrúar og fimmtudaginn 16. febrúar í næstu viku milli klukkan 13-15   Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ“   Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni [v+]http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=23 [v-]hérna[slod-].