9 feb. 2012Aga- og úrskurðanefnd hefur skilað niðustöðu sinni í máli sem upp kom í viðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í 8-liða úrslitum Poweradebikars kvenna sem fram fór þann 23. janúar síðastliðinn. Hægt er að lesa greinagerð aga- og úrskurðanefndar hér fyrir neðan á .pdf formi: [v+]http://www.kki.is/skjol/urskurdur_3_1112.pdf[v-]Úrskurðurinn í heild sinni[slod-] Úrskurðarorð eru eftirfarandi: „Kröfu kærða um frávísun á grundvelli þess að krafa hafi ekki uppfyllt ákvæði 7. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál og lágmarkskröfur um skýrleika kröfugerða á grundvelli laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, er hafnað. Kröfu kæranda um að leikur kæranda og kærða í Powerade-bikar mfl. kvenna, sem leikinn var í íþróttamistöð Njarðvíkur mánudaginn 23. janúar 2012, verði leikinn að nýju er hafnað. Fallist er á kröfu kærða um sýknu á grundvelli þess að leiðrétt mistök af hálfu dómara leiksins hafi fullnægt skilyrðum 44. gr. leikreglna í körfuknattleik. Kröfu kærða um ómaksþóknun er hafnað.“