1 feb. 2012Mótanefnd KKÍ hefur ákveðið að undanúrslitaleikur Snæfells og Stjörnunnar í Powerade-bikar kvenna verði ekki settur á að sinni. Er það mat mótanefndar að báðir undanúrslitaleikirnir eigi að fara fram á svipuðum tíma. Þar sem að ekki er hægt að setja á viðureign Njarðvíkur og Hauka vegna kæru úr leik Njarðvíkur og Keflavíkur í 8-liða úrslitum Powerade-bikars kvenna verður leikur Snæfells og Stjörnunnar ekki settur á að sinni.