31 jan. 2012Kæra barst frá körfuknattleiksdeild Keflavíkur í gær mánudaginn 30. janúar. Kærðu þeir framkvæmd leiks Njarðvíkur og Keflavíkur í 8-liða úrslitum Powerade-bikars kvenna. Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir kæruna og var henni vísað frá vegna formgalla. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur þrjá sólarhringa til að skila inn nýrri og endurbættri kæru. Á meðan svo er er það mat mótanefndar KKÍ að ekki sé hægt að setja á leik Njarðvíkur og Hauka í undanúrslitum Powerade-bikars kvenna sem var áætlaður um næstu helgi.