31 jan. 2012Kolbeinn Pálsson varð þess heiðurs aðnjótandi að vera sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ á 100 ára afmæli ÍSÍ á laugardaginn var. Afmælisboð var haldið hátíðlegt í Ráðhúsi Reykjavíkur og voru fjölmargir gestir viðstaddir, meðal annars forseti Evrópsku Ólympíunefndarinnar. Þrír aðrir voru sæmdir þessum heiðri ásamt Kolbeini. Við afhendinguna var eftirfarandi texti lesinn fyrir gesti: „Kolbeinn hefur gegnt mörgum hlutverkum í íþróttahreyfingunni. Hann hóf snemma að iðka íþróttir og var gjaldgengur í þeim mörgum. Má þar nefna knattspyrnu, skautahlaup, handknattleik, frjálsar íþróttir og körfuknattleik. Var hann valinn í unglingalandslið bæði í handknattleik og körfuknattleik. Kolbeinn vann fjölda titla með KR á sínum íþróttaferli og lék alla landsleiki í körfuknattleik sem leiknir voru á árunum 1965-1976. Kolbeinn er eini körfuknattleiksmaður landsins sem valinn hefur verið Íþróttamaður ársins en það var árið 1966. Kolbeinn var formaður Körfuknattleikssambands Íslands tímabilið 1988-1996 og sat í stjórn Ólympíunefndar Íslands í átta ár. Kolbeinn er enn að störfum og situr m.a. í stjóðsstjórn Afrekssjóðs ÍSÍ og hefur gert frá árinu 2006.“ KKÍ óskar Kolbeini til hamingju með heiðurinn.