27 jan. 2012
Á eftir verður dregið í 4-liða úrslit Poweradebikars karla og kvenna. Drátturinn fer fram í íþróttamiðstöðinni Laugardal og hefst kl. 14.00 í sal á 1. hæð á Café Easy. Liðin sem verða í pottinum eru Haukar, Njarðvík, Snæfell og Stjarnan hjá konunum og hjá körlunum eru það KFÍ, KR, Keflavík og Tindastóll. Undanúrslitin verða leikin 4.-5. febrúar og úrslitaleikirnir fara svo fram í Laugardalshöllinni laugardaginn 18. febrúar. Allir velkomnir!