25 jan. 2012
Í dag átti að draga í 4-liða úrslit Poweradebikars karla og kvenna. Ákveðið hefur verið að fresta honum til morguns, föstudagsins 27. janúar. Drátturinn fer fram í íþróttamiðstöðinni Laugardal og hefst kl. 14.00 í E-sal á 3. hæð. Liðin sem verða í pottinum eru Haukar, Njarðvík, Snæfell og Stjarnan hjá konunum og hjá körlunum eru það KFÍ, KR, Keflavík og Tindastóll. Undanúrslitin verða leikin 4.-5. febrúar og úrslitaleikirnir fara svo fram í Laugardalshöllinni laugardaginn 18. febrúar. Allir velkomnir!