18 jan. 2012
Verðlaunaafhendingin fyrir bestu frammistöðuna í fyrri umferð hjá körlunum fór fram núna fyrir stundu. Heiðraðir voru þeir sem þóttu hafa skarað fram úr í fyrstu 11 leikjunum í Iceland Express-deildinni. Úrvalsliðið fyrri umferðarinnar er þannig skipað: Darrin Govens · Þór Þorlákshöfn Magnús Þór Gunnarsson · Keflavík Árni Ragnarsson · Fjölnir Marvin Valdimarsson · Stjarnan Finnur Atli Magnússon · KR Besti leikmaðurinn: Darrin Govens · Þór Þorlákshöfn Dugnaðarforkurinn: Nathan Walkup · Fjölnir Besti þjálfarinn: Helgi Jónas Guðfinnsson · Grindavík Besti dómarinn: Sigmundur Már Herbertsson KKÍ óskar leikmönnunum, Helga Jónasi og Sigmundi Má til hamingju.