18 jan. 2012Aga- og úrskurðanefnd hefur tekið fyrir eitt mál sem barst nefndinni og eftirfarandi er niðurstaða hennar í málinu. "Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 12/2011-2012. Með vísan til ákvæðis c. liðar 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Oddur Ben - Hamri, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar eftir leik Hamars og Keflavíkur í mfl. kvenna, sem fram fór þann 11. janúar 2012." Bannið tekur gildi á hádegi á morgun, fimmtudag 19. janúar.