3 jan. 2012Að venju verður efnt til Troðslukeppni á Stjörnuleikshátíðinni þann 14. janúar í Dalhúsum í Grafarvogi og óskar KKÍ eftir þátttakendum til að taka þátt. Áhugasamir geta sent póst á kki@kki.is Háloftafuglinn og landsliðsmaðurinn Ólafur Ólafsson hefur verið duglegur að vinna keppnina undanfarin ár en spurningin er hvort kominn sé tími á einhvern þarna úti að velta honum úr sessi?