30 des. 2011Nú er það ljóst hvaða leikmenn hlutu flest atkvæði í kosningunni í byrjunarliðin tvö í Stjörnuleiknum sem fram fer 14. janúar í Dalhúsum í Grafarvogi. Samtals kusu 2.135 einstaklingar og var dreifing atkvæða nokkuð jöfn. Heimasíðan vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í kosningunni og hlökkum til að sja alla áhugasama í Stjörnuleiknum eftir áramótin. Byrjunarliðin samkvæmt vali aðdáenda verða sem hér segir: Höfuðborgarsvæðið: Bakvörður: Justin Shouse • Stjarnan Bakvörður: Martin Hermannsson • KR Framherji: Marvin Valdimarsson • Stjarnan Framherji: Hreggviður Magnússon • KR Miðherji: Nathan Walkup • Fjölnir Landsbyggðin: Bakvörður: Giordan Watson • Grindavík Bakvörður: Magnús Þór Gunnarsson • Keflavík Framherji: Jón Ólafur Jónsson • Snæfell Framherji: J‘Nathan Bullock • Grindavík Miðherji: Sigurður Gunnar Þorsteinsson • Grindavík Helgi Jónas Guðfinnsson mun stýra liði landsbyggðarinnar. Teitur Örlygsson stýrir liði höfuðborgarsvæðisins. Þjálfarar liðanna munu svo velja sjö leikmenn til viðbótar í sín lið. Atkvæðafjöldi: Heildaratkvæði • Top 15 yfir flest atkvæði 1. Justin Shouse • 433 2. J‘Nathan Bullock • 360 3. Marvin Valdimarsson • 353 4. Jón Ólafur Jónsson • 294 5. Sigurður Gunnar Þorsteinsson • 273 6. Ólafur Ólafsson • 240 6. Magnús Þór Gunnarsson • 229 7. Giordan Watson • 221 8. Hreggviður Magnússon • 219 9. Martin Hermannsson • 215 10. Quincy Hankins Cole• 192 11. Elvar Már Friðriksson • 187 12. Páll Axel Vilbergsson • 185 13. Finnur Atli Magnússon • 182 14. Steven Gerrard • 172 15. Árni Ragnarsson • 169