28 des. 2011Nú stendur yfir kosning byrjunarliða í Stjörnuleikinn sem fram fer 14. janúar næstkomandi. Kosningunni lýkur milli jóla og nýárs og því hægt að kjósa ennþá. Mjög jafnt er meðal margra í kosningunni þegar rúmlega 1800 manns hafa skilað inn sínum atkvæðum. Hægt er að kjósa með því smella á auglýsinguna á forsíðu kki.is (hér fyrir neðan frétt) og fylla út einfalt form og skila inn þínu atkvæði. Hver einstaklingur má kjósa einu sinni.