13 des. 2011Búið er að draga í Poweradebikarnum en dregið var í 16-liða úrslitum karla og kvenna. Leikirnir fara fram 7.-9. janúar. Konur: 13 lið skráð til keppni. Dregið var í fimm viðureignir þannig að þeim loknum verða eftir 8 lið. Liðin sem mætast eru: Fjölnir - Laugdælir Þór Akureyri - Hamar Snæfell - Valur Njarðvík - Breiðablik Haukar - KR Liðin sem sitja hjá eru: Grindavík, Stjarnan og bikarmeistarar Keflavíkur. Karlar: Liðin 16 sem mætast eru: Breiðablik - KFÍ KR - Grindavík Hamar - Þór Akureyri Tindastóll - Þór Þorlákshöfn Njarðvík - Höttur Stjarnan - Snæfell Fjölnir - Njarðvík B Skallagrímur - Keflavík