9 des. 2011Í gærkvöldi fyrir leik Keflavíkur og Njarðvíkur í Iceland Express-deildinni voru þeir félagar Eggert Þór Aðalsteinsson og Einar Þór Skarphéðinsson heiðraðir fyrir að hafa dæmt 1000 leiki fyrir hönd KKÍ. Einar Þór Skarphéðinsson er fæddur 1968. Hann hóf að dæma 1988, nánar tiltekið nánar tiltekið þann 20. október þegar hann dæmdi leik KR og ÍS í 1. deild kvenna, meðdómari hans þá var Sigurður Valur Halldórsson heitinn. Fyrsti leikur í Úrvalsdeild var 6. mars 1989 þegar Þór Akureyri tók á móti Njarðvík. Leikinn dæmdi Einar með Leifi Garðarssyni og í leikmannahóp Njarðvíkur var meðal annars Friðrik Ragnarsson sem þjálfar Njarðvík í kvöld. Njarvðík vann leikinn 108-81. 1000. leikurinn hans var nú á dögunum í Þorlákshöfn þegar Þórsarar tóku á móti Fjölni í Iceland Express deild karla og meðdómari þar var einmitt Eggert Aðalsteinsson sem dæmdi með honum í gærkvöldi. Einar hefur dæmt 346 leiki í Úrvalsdeild. Eggert Þór Aðalsteinsson er fæddur 1976. Hóf að dæma 1993, nánar tiltekið nánar tiltekið 9. október þegar hann dæmdi leik KR og Keflavíkur í 1. deild kvenna, meðdómari hans þá var Bergur Steingrímsson. Fyrsti leikur sem hann dæmdi í Úrvalsdeild fór fram þann 19. janúar 1995 þegar Njarðvík tók á móti KR. Leikinn dæmdi Eggert með Leifi Garðarssyni og Friðrik Ragnarsson var einnig í leikmannahóp Njarðvíkur þá. Njarðvík vann leikinn 100-88. 1000. leikur Eggerts var á síðasta tímabili þegar Haukar tóku á móti Hamri í Iceland Express deildinni þann 6. janúar. Meðdómari hans var Davíð Kr. Hreiðarsson. Eggert hefur dæmt 294 leiki í Úrvalsdeild.