9 des. 2011Körfuknattleiksdeild Breiðabliks óskar eftir hæfum þjálfurum til starfa. Körfuknattleiksdeild Breiðabliks er í mikilli sókn og hefur iðkendum fjölgað jafnt og þétt undanfarið og nú er svo komið að fleiri þjálfara vantar til starfa. Við leitum að reynslumiklu og/eða þjálfaramenntuðu fólki sem hefur brennandi áhuga á þjálfun og vilja til að taka þátt í metnaðarfullu uppbyggingarstarfi í öflugu þjálfarateymi. Umsóknir skulu sendar rafrænt á formann unglingaráðs, Helen Guðjónsdóttir [p+]helenhal@simnet.is[p-] helenhal@simnet.is[slod-], þar sem fram kemur þjálfaraferill og menntun. Einnig er hægt að hringja í síma 868-4339 til að fá nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 16. desember.