8 des. 2011
Sverrir Þór Sverrisson hefur boðað til fyrstu æfinga sem landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna. Æfingarnar hefjast milli jóla og nýárs og eru upphafið að undirbúningi fyrir Norðurlandamót kvenna sem fram fer í Noregi í lok maí. Ekki er um endanlegan hóp að ræða og geta leikmenn bæst við eftir því sem nær dregur móti. Hópinn skipa 22 leikmenn að þessu sinni: Birna Valgarðsdóttir · Keflavík Pálína Gunnlaugsdóttir · Keflavík Helga Hallgrímsdóttir · Keflavík Sara Rún Hinriksdóttir · Keflavík Petrúnella Skúladóttir · Njarðvík Salbjörg Sævarsdóttir · Njarðvík Íris Sverrisdóttir · Haukar Margrét Rósa Hálfdánardóttir · Haukar Hildur Sigurðardóttir · Snæfell Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell Helga Björgvinsdóttir · Snæfell Bryndís Guðmundsdóttir · KR Helga Einarsdótttir · KR Margrét Kara Sturludóttir · KR Sigrún Ámundadóttir · KR Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur Kristrún Sigurjónsdóttir · Valur María Ben Erlingsdóttir · Valur Hallveig Jónsdóttir · Valur Helena Sverrisdóttir · Good Kosice Angels Fanney Lind Guðmundsdóttir · Union Sportive de La Glacerie Ragna Margrét Brynjarsdóttir · KFUM Sundsvall