4 des. 2011
Í dag fer fram heil umferð í Iceland Express-deild kvenna þar sem leiknir verða fjórir leikir. Kl. 16.30 hefjast þrír leikir. - KR fær Fjölni í heimsókn í vesturbæinn í DHL-höllina. - Hamar leikur gegn Snæfelli í Hveragerði. - Njarðvík og Keflavík eigast svo við í Ljónagryfjunni. Kl. 17.30 hefst svo síðasti leikur dagsins. -Haukastúlkur á móti Valsstúlkum í Schenker-höllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði. Allir leikir dagsins verða í beinni tölfræðilýsingu á kki.is og að auki sýna Haukar og KR sína leiki beint á netinu. Sjá á tv.haukar.is og á kr.is/karfa.