2 des. 2011Í kvöld fara fram fjölmargir leikir í 1. deild karla en þetta er næstsíðasta umferðin sem leikin verður fyrir áramót. Breiðablik og ÍA eigast við í Smáranum í Kópavogi. Ármann tekur á móti FSu í Kennó og Þór Akureyri fær Hamar í heimsókn úr Hveragerði, en athygli er vakin á því að leikið er í Síðuskóla að þessu sinni fyrir norðan, en ekki í Höllinni líkt og venjulega. ÍG eiga svo heimaleik í Röstinni gegn Skallagrím. Allir þessir leikir hefjast kl. 19.15 í kvöld. Fyrir austan eigast við Höttur og KFÍ en sá leikur hefst kl. 20.00. Höttur og KFÍ eigast svo við að nýju daginn eftir, á laugardaginn kl. 15.00, en félögin ákváðu að leika báða leiki sína gegn hvort öðru í sömu ferð. Í fyrra var sami háttur hafður á og þá var leikið fyrir vestan. Allir leikir helgarinnar verða í beinni tölfræðilýsingu á kki.is