30 nóv. 2011Aga- og úrskurðarnefnd kom saman í vikunni og tók fyrir þrjú mál. Magnús Gunnarsson, leikmaður mfl. ka. í Keflavík, fær einn leik í bann en honum var vikið úr húsi í leik gegn Snæfelli í Iceland Express-deildinni. Darnell Hugee, leikmaður mfl. ka. í Val, fær einn leik í bann en honum var vikið úr húsi í leik gegn Keflavík í Lengjubikar karla. Friðrik Hjálmarsson, leikmaður ung. fl. ka. í ÍR, fær áminningu en fékk tvær óíþróttamannslegar villur í leik með unglingaflokki gegn KFÍ. Bönnin taka gildi á hádegi á morgun fimmtudag. Í síðustu viku kom nefndin saman og tók fyrir eitt mál. Þorsteinn Eyfjörð, leikmaður KR í 11. flokki drengja, fær þriggja leikja bann en honum var vikið úr húsi í leik gegn Stjörnunni í 2. umferð Íslandsmóts 11. flokk drengja. Bannið tók gildi á fimmtudegi í síðustu viku. [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp[v-]Úrskurðir[slod-] aga- og úrskurðarnefndar.