28 nóv. 2011
Í kvöld lauk deildarkeppni í Lengjubikar karla og því ljóst hvaða fjögur lið mætast í fjögurraliða úrslitum keppninnar, en þetta er í fyrsta sinn sem leikið er með þessu fyrirkomulagi. Efstu lið hvers riðils fara áfram og mætast sigurvegarar A- og B-riðils annarsvegar og sigurvegarar C- og D-riðils hinsvegar. Liðin sem mætast eru því: Föstudagurinn 2. desember í DHL-höllinni: Þór Þorlákshöfn og Grindavík kl. 18.30 Snæfell og Keflavík kl. 20.30 Úrslitaleikur laugardaginn 3. desember Sigurvegari fyrri leiks gegn sigurvegarar seinni leiks kl. 16.00