25 nóv. 2011KKÍ hefur ráðið þjálfara á A-landslið kvenna en næsta verkefni hjá liðinu er Norðurlandamótið sem fram fer í maí 2012. Næsti þjálfari A-landsliðs kvenna verður Sverrir Þór Sverrisson. Um Sverri Þór: Sverrir er fæddur árið 1975 og hóf ungur að leika körfubolta enda íþróttin vinsæl í hans heimabæ Keflavík. Sverrir hefur alltaf vakið athygli fyrir ósérhlífni, baráttu á leikvelli og metnaði að leika góða vörn. Sverrir lék með yngri landsliðum sem og A-landsliðinu á sínum tíma og svo var hann aðstoðarþjálfari U-20 ára landsliðs karla sem tók þátt í Evrópukeppninni fyrr á þessu ári. Sverrir hefur verið þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur síðustu 2 ár ásamt því að hafa þjálfað yngri flokka félagsins undanfarin 5 ár. Hann þjálfaði kvennalið Keflavíkur á árunum 2004 – 2006 og varð liðið Íslandsmeistari undir hans stjórn 2005. Aðstoðarþjálfari Sverris: Anna María Sveinsdóttir verður aðstoðarþjálfari Sverris en þau hafa unnið saman áður með kvennalið Keflavíkur. Önnu Maríu þarf vart að kynna fyrir afrek sín í kvennaíþróttum á Íslandi en þar fer ein af sigursælustu konum allra tíma í hópíþróttum á Íslandi. Norðurlandamót í Noregi 2012: Norðurlandamót A-landsliða fer fram í Osló dagana 23. – 27. maí