22 nóv. 2011Búið er að skipta liðunum 31 sem taka þátt í Evrópukeppninni fyrir EM2013 í Slóveníu í styrkleikaflokka. Átta lið eru örugg með sæti á næsta móti eftir síðasta EM í Litháen. Það eru Spánn, Frakkland, Rússland, Makedónía, Litháen, Grikkland, gestgjafar Slóveníu og Bretar. Eftir sitja 16 sæti sem leikið verður um. Leikið verður heima og að heiman dagana 15. ágúst -11. september næsta haust. Eitt lið fer úr hverjum styrkleikaflokki í hvern riðil og þar sem við erum oddaþjóð og eina þjóðin í styrkleikaflokki 6 verður líklegast dregið síðast í hvaða riðil við lendum, en það kemur í ljós á næstunni. Ísland er eina þjóðin sem tekur þátt núna sem ekki var með í síðastu keppni. Dæmi um lönd sem ekki taka þátt núna eru Noregur, Danmörk og Írland, en þau voru heldur ekki með í síðustu keppni. Styrkleikaflokkarnir eru eftirfarandi: Stykleikaflokkur I: Serbía, Tyrkland, Þýskaland, Finnland, Georgía, Króatía. Stykleikaflokkur II: Úkraína, Búlgaría, Pólland, Bosnía, Ísrael, Ítalía. Stykleikaflokkur III: Svartfjallaland, Lettland, Belgía, Portúgal, Holland, Svíþjóð. Stykleikaflokkur IV: Tékkland, Eistland, Holland, Sviss, Austurríki, Aserbaídsjan. Stykleikaflokkur V: Hvíta Rússland, Slóvakía, Rúmenía, Albanía, Lúxemborg, Kýpur. Stykleikaflokkur VI: Ísland Eins og áður segir verður dregið í Munchen þann 4. desember og verður drátturinn væntanlega í beinni útsendingu.