21 nóv. 2011Í gær var söguleg stund í íslenskri körfuboltasögu þegar þeir félagar Jón Arnór og Haukur Helgi mættust í ACB-deildinni á Spáni með liðum sínum Assignia Manresa og CAI Zaragoza. Tímabilið í ár er það fyrsta sem Ísland á tvo fulltrúa í þessari sterkustu deild Evrópu, og sú sem kemur næst á eftir NBA-deildinni. Báðir voru þeir félagar í byrjunarliðum sinna liða í gær en leikið var á heimavelli Hauks Helga og félaga í Manresa. Assignia Manresa leiddi framan af og voru yfir í hálfleik. Jón Arnór og félagar enduðu hinsvegar á góðum 4. leikhluta sem þeir unnu 34:21 og sigruðu leikinn eftir að hafa verið undir framan af, lokatölur 74:81. Jón Arnór stóð sig vel, var með 20 stig, 2 fráköst og 2 stoðsendingar á aðeins 18 mínútum sem hann spilaði sem verður að teljast mjög gott. Haukur Helgi stóð sig líka vel og var með 6 stig á þeim 12 mínútum sem hann lék, en hann hitti úr báðum þriggja stiga skotum sínum. [v+]http://acbtv.acb.com/video/4309-lacb-20112012-liga_regular-8-67-hettsheimeir_aparece_en_la_segunda_mitad_y_destroza_al_assignia [v-]Það helsta úr leiknum í gær[slod-]. Mikið hefur verið um að vera hjá íslensku körfuboltafólki það sem af er á þessu tímabili. Sem dæmi má nefna Helenu Sverrisdóttur sem lék fyrst kvenna í Euroleague og er á sínu fyrsta ári sem atvinnumaður í Slóvakíu, íslenska landsliðið á sex leikmenn í sænsku úrvalsdeildinni sem eru allir í stórum hlutverkum og Hörður Axel er í efsta sæti með liði sínu Mitteldeutscher sem er í næst efstu deild og stefnir harðbyr á Pro A-deildina á næsta ári. Auk þess eiga Íslendingar fulltrúa í dönsku úrvalsdeildinni, frönsku kvennadeildinni og í ýmsum skólum í Bandaríkjunum og víðar um heiminn. Það er því sannarlega björt framtíð hjá íslensku körfuboltafólki hér innanlands sem utan.