18 nóv. 2011
Í kvöld fer fram heil umferð í 1. deild karla vítt og breytt um landið. Allir leikir kvöldins hefjast kl. 19.15, nema leikur Breiðabliks og FSu sem hefst kl. 20.00. Breiðablik og FSu mætast í Smáranum kl. 20.00 en á undan honum eigast við kvennalið Breiðabliks og Grindavíkur í 1. deild kvenna kl. 18.30 og því um tvíhöfða að ræða. Blikar blása til hátíðar og bjóða öllum frítt á leikina. Þeir verða með grill og fleira fyrir stuðningsmenn sína og gesti og skemmtiatrið í hálfleikjum. Blikar eru fyrir leikinn í 4.-5. sæti deildarinnar með 6 stig og FSu eru 8.-9. sæti með 2 stig. Á Akureyri eigast við Þórsarar og Höttur. Höttur hefur 6 stig í 4.-.5 sæti en Þór er í neðsta sæti án sigurs. Nýliðar ÍG fá KFÍ menn í Röstina í Grindavík. ÍG menn hafa byrjað vel í deildinni í vetur og eru í 2.-3. sæti með 8 stig eftir fjóra sigurleiki. KFÍ menn eru á toppnum í deildinni og hafa unnið alla fimm leiki sína til þessa. Hinir nýliðarnir í ár, ÍA, fá Hamarsmenn í heimsókn upp á Skipaskaga en liðin eru jöfn að stigum, bæði með 4 stig eftir tvo sigurleiki hvort en Hamar hefur leikið einum leik fleira. Í Kennaraháskólanum eigast við Ármann og Skallagrímur. Ármann er í 8.-9. sæti með 2 stig en Skallarnir eru í 2.-3. sæti deildarinnar með 8 stig. Allir leikir kvöldsins verða í beinni tölfræðilýsingu á kki.is