15 nóv. 2011Nú var að ljúka bikardrættinum í 32-liða úrslitum Poweradebikar karla og eftirfarandi lið drógust saman. Leikið verður dagana 9.-12. desember. Það voru þeir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ og Stefán Magnússon, markaðsstjóri Vífilfells, sem drógu að þessu sinni. Liðin sem mætast: 1. Reynir S · Hamar 2. Ármann · Skallagrímur 3. Grindavík · Haukar 4. Stjarnan b · Stjarnan 5. ÍR · Keflavík 6. Haukar b · Breiðablik 7. Patrekur · Njarðvík b 8. Víkingur Ó. · Þór Þ. 9. KFÍ · FSu 10. KR b · Höttur 11. Álftanes · Tindastóll 12. ÍBV · Þór A. 13. ÍA · Fjölnir 14. Valur · Snæfell 15. ÍG · Njarðvík 16. Mostri · KR