14 nóv. 2011
Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að senda A-landslið karla til keppni á nýjan leik í Evrópukeppni en hún verður nú leikin með breyttu sniði. Ekki er lengur leikið í A- og B-deildum eins og fyrirkomulagið var síðustu ár, heldur verður öllum liðunum raðað eftir styrkleika og dregið í riðla. Ísland tók síðast þátt í keppninni 2008-2009 en þá tók það tvö ár að klára eina keppni í gamla fyrirkomulaginu þannig að segja má að Ísland hafi verið eina umferð fyrir utan keppnina. Sex efstu þjóðir frá Evrópukeppninni í Litháen síðastliðið haust ásamt Slóveníu, sem heldur keppnina 2013, fara beint í lokakeppnina en aðrar þjóðir verða í pottinum þegar dregið verður í riðla þann 4. desember. Það verða þjóðir eins og Serbía, Þýskaland, Tyrkland, Króatía, Ítalía, Ísrael og Bosnía að ógleymdum þjóðum eins og Svartfjallalandi, Georgíu og Finnlandi sem verða á meðal þeirra liða sem Ísland getur lent í riðli með. Riðlakeppnin klárast öll á næsta ári en leikið verður heima og heiman 15. ágúst – 11. september. NM A-landsliðs kvenna A-landslið kvenna fer á Norðurlandamót í Osló dagana 23. – 27. maí en sl. sumar léku karlarnir í Svíþjóð. Evrópukeppni yngri landsliða U-16 kvenna fer í Evrópukeppni C-deild sem fer fram dagana 5. – 14. júlí og einnig fer U-18 karla í Evrópukeppni B-deildar dagana 9. – 19. ágúst. Þann 3. desember kemur í ljós hvar mótin verða haldin og hverjir mótherjarnir verða í okkar riðli. NM yngri landsliða Að venju taka U16 og U18 ára lið drengja og stúlkna þátt í Norðurlandamóti yngri landsliða sem fram fer í Solna í Svíþjóð dagana 16. – 20. maí. U15 á Copenhagen Invitational U-15 karla og kvenna fara á Alþjóðlegt mót í Kaupmannahöfn dagana 21. – 24. júní eins og undanfarin ár.