
11 nóv. 2011Í kvöld fara fram þrír leikir í 1. deild karla. KFÍ, sem situr á toppi deildarinnar, fær Þór frá Akureyri í heimsókn sem verma botnsætið. Hjá KFÍ er Ari Gylfason í banni en Þórsarar hafa nýlega fengið til liðs við sig fyrrum leikmann KFÍ, Darco Milosevic og Spencer Harris að auki. Að venju munu KFÍ senda út á netinu, og verður leikurinn verður sýndur í HD gæðum frá Jakanum á Ísafirði á vef [v+]http://www.kfi.is/ [v-]kfi.is[slod-]. Skallagrímur og ÍA mætast í Fjósinu í Borgarnesi. Skallagrímur hefur unnið þrjá af fyrstu fimm leikjum sínum og skagamenn tvo af fyrstu þrem. Í Frystikistunni í Hveragerði verður svo sannkallaður suðurlandsslagur þegar Hamar fær FSu í heimsókn frá Selfossi. Allir leikir kvöldsins verða í beinni tölfræðilýsingu hér á kki.is kl. 19.15. Á morgun laugardag mætast svo ÍG og Breiðablik í Röstinni, Grindavík kl. 16.30.


