10 nóv. 2011Sigmundur Már Herbertsson er nýkominn heim á ný eftir dómarastörf fyrir FIBA Europe í Slóvakíu þar sem hann dæmdi í EuroChallenge-deild karla í Nitra. Heimamenn í Bemaco Spu Nitra töpuðu 72:77 fyrir EWE Baskets frá Þýskalandi. Sigmundi gekk að eigin sögn mjög vel en um hörkuleik var að ræða. Björgvin Rúnarsson mun halda til Danmerkur og dæma leik 1. desember í keppni kvenna en þá mætast SISU og Arras í Gentofte.