8 nóv. 2011Leik KFÍ og Fjölnis fyrir vestan hefur verið frestað að nýju þar sem ekki var flogið vestur í dag. Þar sem bæði lið eiga leiki frá fimmtudegi fram til sunnudags verður leikurinn færður til miðvikudagsins 16. nóvembers n.k. kl. 19.15. Á morgun verður heil umferð í Iceland Express-deild kvenna og á fimmtudag og föstudag í Iceland Express-deild karla auk leikja í 1. deild karla.