3 nóv. 2011Í kvöld verður sýnt beint frá leik KR og Keflavíkur á visi.is en þetta er í fyrsta sinn sem þeir sýna beint fá körfuboltaleik á síðunni. Stefnt verður að því að sýna einn leik í hverri umferð í Iceland Express deild karla og verður gæði útsendingarinnar með besta móti og mun Valtýr Björn lýsa leiknum í kvöld eins og honum er einum lagið. [v+]http://www.visir.is/leikur-kr-og-keflavikur-syndur-beint-a-visi-i-kvold---valtyr-bjorn-lysir/article/2011711039965 [v-]Vísir.is fjallar um málið[slod-] á vefsíðu sinni í dag. Fjölmörg félög hafa undanfarin ár verið dugleg að sýna á netinu leiki og verður engin breyting þar á, heldur bætist Vísir.is bara í hóp þeirra sem senda út, sem er gleðiefni og ætti að fjölga útsendingum í vetur. Tengil á leikinn má nálgast í kvöld á www.visi.is.