2 nóv. 2011Aga- og úrskurðarnefnd kom saman í gær og tók fyrir þrjá mál. Arvydas Diciunas, leikmaður drengjaflokks ÍR, fær einn leik í bann eftir brottrekstur í leik ÍR og Hauka í drengjaflokki. Kjartan Orri Sturluson, leikmaður Vals-b, fær einn leik í bann eftir brottrekstur í leik Fjölnis-b og Vals-b í B-liða deild karla. Daði Lár Jónsson, leikmaður Stjörnunnar, fær áminningu en hann fékk tvær tæknivillur í leik Stjörnunnar og Grindavíkur í 1. umferð A-riðils í Íslandsmóti 10. flokks drengja. Úrskurðurinn tekur gildi á fimmtudag.