28 okt. 2011Í dag var dregið á skrifstofu KKÍ í 64-liða úrslit Powerade-bikarkeppni karla. Félög í Iceland Express-deild karla og 1 deild karla koma inní 32-liða úrslit. 41 lið var skráð til leiks og fara 19 þeirra í 64-liða úrslit. Eftirfarandi lið drógust saman: Laugdælir-KR-b Álftanes-Fjölnir-b Stjarnan-b-Augnablik Haukar-b-Katla Leiknir-Reynir Sandgerði KV-Víkingur Ólafsvík Mostri-Valur-b Tindastóll-b-Patrekur Njarðvík-b-Bolungarvík ÍBV situr hjá og fer beint í 32-liða úrslit ásamt félögum í Iceland Express-deild karla 1. deild karla. Leikið verður dagana 11.-14. nóvember.