26 okt. 2011Aga- og Úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir kæru á hendur Inga Þór Steinþórssyni, þjálfara Snæfells í Iceland Express-deild kvenna, en hann fékk dæmdar tvær tæknivillur í leik gegn KR síðastliðinn sunnudag. Agaúrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 1/2011-2012 „Með vísan til ákvæðis b. liðar 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ingi Þór Steinþórsson - Snæfelli, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik KR og Snæfells í mfl. kvk. sem fram fór þann 23. október 2011." Bannið tekur gildi á morgun, fimmtudag.