22 okt. 2011Nú styttist í að leikur Skallagríms og Þór Akureyri hefjist í „Fjósinu" í Borgarnesi. Skallagrímur er á toppnum eftir tvær umferðir með tvo sigurleiki ásamt ÍA og KFÍ. Báðir sigurleikir Skallagríms hafa unnist á útivelli, gegn Hetti og Breiðablik, og því fyrsti heimaleikur leitíðarinnar að hefjast. Þór Akureyri hefur tapað báðum sínum leikjum til þessa, heima gegn ÍA og úti í gærkvöldi gegn Ármanni. Leikurinn í gær var æsispennandi og þurfti framlengingu til að knýja fram úrslit. Pétur Þór Jakobson var hetja Ármenninga í þeim leik, jafnaði fyrst með þriggjastiga körfu til að knýja fram framlengingu og skoraði svo sigurkörfuna í lokin. Leikurinn Skallagríms og Þórs Akureyri hefst kl. 15.00 og verður í beinni tölfræðilýsingu á hér á kki.is