21 okt. 2011Í kvöld verður nóg um að vera á körfuboltavöllum landsins en þá fara fram leikir í Iceland Express-deild karla, 1. deild karla, 2. deild karla og 1. deild kvenna. Í 1. deild karla mætast Ármenningar og Þór Akureyri í Kennó. Nýliðarnir ÍA og ÍG mætast á Akranesi á Jaðarsbökkum, en bæði lið unnu sína fyrstu leiki. FSu fá KFÍ menn í heimsókn frá Ísafirði í Iðu á Selfoss. Þá spilar Hamar heima gegn Hetti. Allir þessi leikir hefjast kl. 19.15. Í 2. deild karla mætast Hekla og Víkingur Ólafsvík á Hellu kl. 19.30 og Mostri fær Patrek í heimsókn í Hólminn og hefst sá leikur kl. 20.00. Reynir Sandgerði leikur svo gegn Álftanesi kl. 19.00. Í 1. deild kvenna eigast við Breiðablik og Laugdælir í Smáranum kl. 19.15. Yfirlit allra leikja má sjá hér á síðunni undir [v+]http://www.kki.is/motayfirlit [v-]Mótayfirlit[slod-].