15 okt. 2011Í dag hefst Íslandsmótið í 8. flokki drengja og stúlkna ásamt 11. flokki drengja og Stúlknaflokki. Það eru 68 lið sem taka þátt í mótum helgarinnar. Mótin eru 14 talsins og fara fram á eftirfarandi stöðum, Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Garðabæ, Kópavogi, Reykjavík, Borgarnesi, Stykkishólmi, Sauðárkróki, Akureyri, Flúðum, Selfossi og Hveragerði. Úrslit allra leikja eiga að koma á netið seinni partinn á morgun.