14 okt. 2011Í kvöld hefst tímabilið í 1.deild karla og eru þrír leikir á dagskrá. Ármann og Breiðablik mætast í Kennó en þessi lið hafa verið í deildinni sl. þrjú ár. Þór Akureyri fær nýliða ÍA í heimsókn á Akureyri. Sigurvegarar 2. deildar, ÍG frá Grindavík, hefur leik í Röstinni gegn FSu frá Selfossi. Allir þessir leikir munu vera í beinni tölfræðilýsingu á netinu. Það er ljóst að spennandi mót er framundan í 1.deildinni.