7 okt. 2011Keppni er hafin á Íslandsmótinu í yngri flokkum. Um síðustu helgi hófst keppni í drengja- og unglingaflokki karla. Í kvöld eru þrír leikir á dagskrá í unglingaflokki karla en það eru: Breiðablik-Fjölnir kl. 19.15 - Smárinn Njarðvík-Haukar kl. 20.00 - Njarðvík Snæfell/Skallagrímur-ÍR kl. 20.30 Stykkishólmur Helgina 15.-16. október eru fyrstu fjölliðamót vetrarins en þá hefst keppni í stúlknaflokki, 11. flokki drengja, 8. flokki stúlkna og 8. flokki drengja. Fjölliðamótin þá helgi eru 14 talsins og fara fram víða um land.