5 okt. 2011
Árlegur leikur milli núverandi Íslandsmeistara og Bikarmeistara karla og kvenna fer fram á sunnudaginn. Kvennaleikurin hefst kl. 17.00. Keflavík er Íslands og bikarmeistari og mætir KRsem lék til úrslita gegn Keflavík í Poweradebikarnum. Hjá körlum, sem hefja leik kl. 19.15, mætast íslandsmeistarar KR og þar sem þeir eru tvöfaldir meistarar mæta þeir Grindavík sem eru fulltrúar Poweradebikarsins. Leikirnir fara fram í DHL-höllinni, en að venju er leikið á heimavelli Íslandsmeistara karla. Boðið verður upp á BBQ-grill frá kl. 16.00 og fyrir seinni leikinn einnig. Karlakór kaffibarsins mun syngja og veitingasala verður einnig á svæðinu. Allur ágóði af leiknum rennur til yngri landsliðsstarfs KKÍ að þessu sinni og gilda boðskort/aðgöngukort KKÍ ekki á þessum leik. Miðaverð er 1.500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir 15 ára og yngri. Miðinn gildir á báða leikina.