3 okt. 2011Sigmundur Már Herbertsson, annar af tveimur FIBA-dómurum okkar, heldur út til Finnlands og dæmir á morgun leik milli karla liða Tampereen Pyrintö og Szolnoki Olaj í Evrópukeppni félagasliða, en leikið verður í Tampere. Sigmundur hefur verið að dæma talsvert að undanförnum misserum og verið að fá fleiri og stærri verkefni frá FIBA Europe eftir góða frammistöðu í þeim leikjum sem hann hefur dæmt. Það verður nóg um að vera í Evrópuboltanum í vetur og mun Sigmundur væntanlega fá fleiri verkfefni úthlutað á næstunni sem við flytjum fréttir af þegar að því kemur.